Þessi skilaboð fékk ég 7.febrúar síðastliðinn klukkan 02:36 frá manneskju sem á skype heitir marina_russia1:
Hello dear, do you remember how we communicated with you? Long ago you could not see, I am Marina - with Russia, do you remember me? Come to my page - let's talk, I'm waiting! http://55yy.ru/?idAff=141.
Alveg rétt, fyrir löngu síðan, þegar ég gat ekki séð, átti ég langt og gott spjall við rússnesku vinkonu mína Marinu! Ég var næstum búin að gleyma því, gott að hún minnti mig á það. Elsku Marina.
10. febrúar 2010
15. október 2009
come on take my hand...
Ég hef vanalega mætt mjög vel í skólann alla mína skólagöngu. Í grunnskóla var ég ein af þeim sem fór alltaf í pítsuveislu á hverri vorönn vegna þess að ég var með 95% mætingu eð meira. Svo hélt þetta áfram í menntaskóla og hef ég tvisvar sinnum fengið einingu fyrir mætingu. Ég skal þó viðurkenna að þetta fer minnkandi með árunum og þá sérstakelga seinleikinn. Ég á erfitt með að fara framúr á morgnana og mæti þar af leiðiandi oft á tíðum seint í tíma. Núna síðan skólinn byrjaði í haust hefur það nokkrum sinnum komið fyrir og líka að ég hafi einfaldlega skrópað. Ég leit á mætingarprósentu mína á INNU í gær, bjó mig undir svona smá eitthvað ekki nógu gott. Mér brá þegar ég leit á summuna, 100% ótrúlegt, ótrúlegt. Ég er, ef svo má að orði komast, með þessa kennara í vasanum, það verður bara að segjast. Til að styrkja mál mitt er ég með sönnunargagn.
Ég er að fara til Noregs á föstudaginn og verð fram á miðvikudaginn í vikunni eftir og fer suður á fimmtudegi. Ég á eftir að panta flug suður svo ég veit ekki klukkan hvað ég fer. Ég sendi Sigurlaugu Önnu, aðstoðarskólameistara, póst og bað um leyfir hluta af fimmtudeginum(enn óráðið hversu mikinn hluta), föstudaginn þegar ég fer og miðvikudaginn þegar ég kem heim.(það er vetrarfrí daginn eftir) Þetta var svar hennar:
Sæl Júlía.
Þú hefur alltaf mætt ákaflega vel þannig að þú átt þetta meira en skilið. Ég skrái leyfið á föstudegi og miðvikudegi og þú lætur mig svo vita hvernig fer með fimmtudaginn.
Góða ferð,
Sigurlaug Anna
Ég ætti kannski að kaupa einhverja bilað flotta uglu í Norge, til að slefa á þau vegna mikils sleikjuhátts og tryggja gott samband.
- Júlía Karlsdóttir 4.G-lifir
24. september 2009
supertime
Núna fyrir rúmlega þremur mánuðum þá var í gleðskap hjá einni ágætir stúlku. Ég var virkilega ölvuð og gleymdi einhverju heima hjá henni. Fór þunna daginn eftir að ná í einn hlut. Við rifjuðum upp vandræðaleg móment og ég endurheimti hlut minn. Daginn eftir fattaði ég að ég hafði gleymt gollunni minni. Ohh, hugsaði ég, ég verð að ná í hana. En svo leið tíminn og aldrei náði ég í þessa ágætu gollu mína.
Þetta var alltaf svona aftast í hausnum að flíkin væri þarna en aldrei hafði ég samband. Svo gerðist það í gær að ég mæti í skólann. Þessi ágæta stúlka situr fyrir framan mig og ég horfi á hana og hugsa: Hún er í gollunni minni!? Mikið rétt, þarna sat hún ánægð í nýju gollunni sem hún hafði eignað sér. Ég hafði ekki kjarkinn í að segja eitthvað við hana og vonast hreinlega til að hún sé ekki ein af leyndum aðdáendum Jarmunds.
- Kúlía

19. september 2009
solomon
Ég ligg uppi í rúmi með tölvuna í fanginu, klukkan er 1:03 og ég er í ágætis fílíng. kemur ekki þessi fluga og fer að fljúga fyrir framan andlitið á mér. ég slæ hana í burtu. þá finn ég kítl á handleggnum, flugan mætt, ég ýti henni af og hún dettur í rúmið. oj. því næst kemur hún á tölvuskjáinn hjá mér. ég reyni aftur og aftur að ýta henni í burtu en hún er eitthvað treg til. það endar með því að ég reyni að taka hana með fingrunum þar sem hún stendur á milli skjásins á tölvunni og lyklaborðsins og færa hana í burtu, í ruslið jafnvel. ég næ henni furðu auðveldlega og sé að eftir er einn lítill vængur á tölvunni. ég legg greyið á skrifborðið mitt og tek vænginn og hendi honum á gólfið. held glöð áfram í tölvunni en finn fyrir samviskubiti magnast. ég sleit vænginn af greyinu, sem liggur núna sárþjáð á skrifborðinu mínu. hún var bara að leika sér og hafa gaman af lífinu þegar risinn kom og reif af henni vænginn. það endaði með því að ég sagði fyrirgefðu. og því var beint til hennar.
26. ágúst 2009
tana.tene
Ég er búin að missa blogghæfileikann. Hann var ekki ýkja mikill í upphafi en núna er hann enginn. núll. hvað er í gangi?
Þetta virðist vanta í mig ásamt því að vera fær um það að fara fram úr rúminu á morgnanna. Vekjaraklukkan hringir, ég ýti á snooze, hún hringir aftur, ég ýti á sama takkann, lít á klukkuna og sé að hún er 8:30 og ég á að vera mætt í vinnuna. Ég horfi á klukkuna í smá tíma,svekkt yfir því að ég muni vera sein, og stend svo upp. Ég klæði mig ekki á milljón heldur klæði ég mig bara og tannbursta fljótt. Mæti svo vanalega svona 10 mínútum of seint. En ef ég er að vakna við vekjaraklukkuna í fyrsta skipti klukkan 8:30 þá sprett ég upp og hugsa andskotinn ég verð sein og klæði mig hratt.
En ég þarf ekki að hafa áhyggjur af þessu því jú, ég kláraði sumarvinnuna mína góðu klukkan 21:45 í kvöld. Vann í 13 klukkustundir og 15 mínútur og fór í sund fyrir vinnu, eitthvða sem ég ætlaði mér að gera í allt sumar, gott að gera það síðasta daginn.Ekki misskilja mig þegar ég segist hafa farið í sund að ég hafi synt, því það gerði ég alls ekki, ég fór í pottinn, gufu og barnalaugina. Góður hringur sem ég fer vanalega þegar ég legg leið mína í sundlaug akureyrar. Ég borga núna.

15. júlí 2009
bamm bamm
Between you and Jaan Emran
Hi Julia, I am Emran. i live in malmo,Sweden.
Well i was just browsing and happen to see your profile, find you very beautiful and attractive. I am interested to know you better, of course if you would like so?
Take care.
emran

Já, af hverju ekki... ég ætla að senda honum póst til baka, það er klárt mál. Ég meina ef maður dæmir af þessum myndum, ríkur, myndarlegur og áhugaverður maður án efa.

18. júní 2009
cicero
Ég er spennt fyrir afmælinu mínu. Ég verð 19 ára annan júlí. Í dag eru tvær vikur í það. Hættir maður einhverntíman að vera spenntur fyrir því? Það er gaman að fá hamingjusóskir frá fólki og gaman að halda upp á það helgina eftir, sem er raunin í mín tilviki. Vera í kjól og bjóða píum heim í allskonar góðgæti. GA man.
Það voru 50 ára afmælisstúdentar að gista hjá okkur á hótelinu núna í kringum sextándann. Ég lenti að spjalli við einn, hann kom inn í herbergið þegar ég og magga tagga vorum að skipta um á rúminu í herberginu hjá þeim hjónum. Konan beið frammi en hann ákvað að setjast á stól og spjalla. Hann byrjaði... Hún heimtaði að ég myndi skipta um föt... Hún ræður alltaf í hverju ég er... ert þú gift?
Af tóninum að dæma og því sem hann sagði í byrjun fékk ég það á tilfinninguna að honum þætti það ekki svo frábært. Þegar ég og magga lokuðum hurðinni heyrði ég í konunni, nei, vertu í þessum jakka... það er sautjándi júní! Ég hló og þótti strax smá vænt um þetta fólk. Hver veit nema ég verði í þessum sporum eftir fimmtíu og eitt ár.
Sama dag var ég ásamt öðrum stelpum að þrífa... ég opnaði eitt herbergi og hugsaði strax, hérna hafa einhverjir ungir verið. Ég dró þá ályktun vegna þess að í ruslinu voru þrjár bjórrútur, tómar, opinn flögupoki og brauðstangakassi. Næsta hugsun var að þau hafa komið ofurölvi heim á hótelið og fengið sér eitthvað að borða til að reyna að minnka komandi timburmenn. Svo fattaðist það, þetta voru jú mikið rétt, 50 ára stúdentar. Og hvað fannst undir koddanum? hálf étin samloka. Hver veit nema ég verði í þessum sporum? Í augnablikinu finnst mér það líklegra.
Ég haf aldrei hitt fólk sem er með allt jafn mikið á hreinu og þetta fólk. Ég hafði gaman af þeim.
Dirty dancing er ein af mínum uppáhalds bíómyndum. Ljúfir tónar í þeirri mynd. Þar á meðal þetta lag og cry to me... úff.

Subscribe to:
Posts (Atom)